07. desember 2008 klukkan 00:31
Við Vala Björk fórum áðan á jólatónleikana með Björgvini Halldórs og hans góðu jólagestum.
Þegar við vorum að koma að laugardalshöllinni ákvað Vala að elta bíl sem beygði á eitthvað skrítnum stað ;) Ég sagði strax við að hana þetta væri hættulegur bíll (vill ekki nota rétt orðalag vegna birtingarmáta bloggsins) og hún ætti ekki að elta hann hehehehe. Við fengum hins vegar snildlar stæði á bak við höllina og það fyrsta sem við sem við sáum þegar við lögðum í stæði var Stefán stórvinur okkar Hilmarsson.
Þegar við Vala skoðuðum dagskrána fyrir tónleikana sáum við í hvaða röð lögin áttu að koma. Tónleikarnir hófust síðan á kolbika vitlausu lagi (samkv dagskránni). Næsta lag kom og svo kom þriðja lagið sem var rétta lagið samkvæmt blessaðri dagskránni. Þá fór ég að hugsa.... þetta átti að byrja á Ave Maria svo átti að koma lagið Ef ég nenni með Helga Björns og þar á eftir Ein handa þér með stórvini mínum Stefáni Hilmarssyni. Ég sat þarna í laugardalshöll að hlusta á Stebba minn syngja meðan ég hugsaði þetta og þá fattaði ég hvað það var skrítið að fyrstu þrjú lögin voru í stafrófsröð. Döööööö ... heilinn smá stund í gang og þá fattaði ég að listinn var í stafrófsröð en ekki tímaröð. Ég hló smá með sjálfri mér og benti Völu svo á þetta. Vala sagði síðan við mig í hléinu (eða var það eftir tónleikana?) að þetta hefði nú blond moment en mín heyrn er ekki betri en það að ég leit á hana og sagði: Ha var þetta Blogg móment? ... og ákvað í kjölfarið að ég þyrfti að blogga um þetta....
Við fórum eftir tónleikana aftur í bílinn í snilldarstæðinu og horfðum á Stebba meðan hann hneppti frá jakkanum sínum, því miður (eða sem betur fer?) sáum við ekki meira en það....
Eftir þetta fórum við í Hagkaup í skeifunni sem er nú opin allan sólarhringinn og það var nú barasta slatti að gera. Ég fékk svona fríhafnarfíling þegar ég kom þarna inn hehehehe.
Annars hef ég fátt meira að segja annað en hafið það gott á aðventunni
Guðný Hulda
16. nóvember 2008 klukkan 12:43
í dag byrjaði jólaundirbúningurinn á þessu heimili. Við vöknuðum öll frekar snemma og ég var í svo miklu stuði að ég byrjaði að baka. Viktoría Hildur hafi í gær fengið gefinst dóta eldavél og hún var inni í stofu að elda og baka sjálf.
Alltaf þegar klukkan í eldhúsinu hringdi og það þurfti að skipta um plötur þá kom hún undir eins inn í eldhús og annað okkar foreldranna hélt á henni meðan hitt skipti um plötu í ofninum. Mín dama fylgdist sko vel með að þetta væri allt rétt gert. Að sjálfsögðu fékk hún að smakka smá smákökubita og það fannst minni sko ekki vont.
Annars er fátt að frétta héðan fyrir utan að það eru
38 DAGAR TIL JÓLA
bless í bili
Guðný Hulda
02. nóvember 2008 klukkan 22:43
Jæja þá hefur maður borið goðið augun einu sinni enn. Það gerðist í Loga í beinni á föstudagskvöldið þar sem við Vala Björk mættum að sjálfsögðu eins og sannir aðdáendur eiga að gera. Við stóðum við innganginn að bíða eftir Láru og Berglindi völusystur þegar goðið gekk inn. Sem betur fer vorum við við í heitum umræðum um eitthvað svo merkilegt að ég man ekki hvað það var. Allavegana bjargaði samtalið okkur frá því að gapa eins og enn meiri nördar en við þegar vorum. En við gláptum ágætlega á manninn sem gekk fram hjá og ég er ekki frá því að hann hafi glott skynjandi áhrifin sem hann hafði á okkur.
Annars var föstudagskvöldið yndislegt. Sá sálina live í loga í beinni sem var æðislegt. Þar var rifjuð upp sagan þeirra sem er náttúrulega bara skemmtileg. Eftir þetta var haldið í vinnupartý sem var að sjálfsögðu skemmtilegt! Frábært fólk! Ég sleppti samt sálarballinu sem Vala mín fór á þar sem hún endurupplifði víst fyrri atburði kvöldsins stúlkan. Ég var víst bara heima og varð veik. Lá í allan gærdag í vibba pest en er hress núna.
Á morgun byrja ég svo að vinna fyrir alvöru hehehe en vettvangsnáminu mínu lauk á föstdaginn var.
Ég hef ekki meira að segja í bili. Endilega kommentið ef þið viljið halda þessu blessaða bloggi á lífi...... ;)
Guðný Hulda
24. ágúst 2008 klukkan 23:54
Hélt upp á eins árs afmæli dóttur minnar í dag. Það kom hellingur af fólki og dagurinn var yndislegur. Stelpan mín fékk rosalega mikið af leikföngum í dag og við pabbi hennar ræddum það að taka eitthvað af því út og skipta svo um. Ég get samt sagt það að ég sat áðan að skoða dótið og reyna að velja hvað ætti að fara út til að byrja með þá fékk ég valkvíðakast. Ég tók helling út af leikföngum sem hún átti fyrir afmælið (barnið á rosalega mikið af dóti) og tók eiginlega ekkert út af nýju leikföngunum. Jújú alveg nokkra hluti en ekki marga hehehe. Síðan hugsaði ég til þess að ég væri hálf svekkt að hún þyrfti að fara á leikskóla á morgun því mig langaði helst að hafa hana heima með mér að leika með dótið. En ég verð víst að láta mér nægja að leika eftir leikskóla og svo annað kvöld :)
Annars hef ég voða lítið að segja núna.... gerist voða lítið hérna.
Fer kannski að breytast, á þriðjudaginn byrja ég í vettvangsnámi sem verður eflaust mjög skemmtilegt. Verð í því í 10 vikur og fer svo að vinna. Viktoría Hildur er leikskólastelpa og gengur það ágætlega.
Ég kveð í bili en veit ekki hvort ég bloggi mikið meira.... get ekki séð að mín hafi verið saknað þennan tíma sem ég hef ekki bloggað.....
Guðný Hulda
28. maí 2008 klukkan 23:19
ég hef alltaf litið á morgunblaðið sem virtan og áræðanlegan fréttamiðil en upp á síðkastið hefur álit mitt á morgunblaðinu dalað heilmikið.
Það er mest af þeim sökum að þið virðist bara hafa lesblinda fávita í vinnu sem kunna ekki að setja upp púka á tölvuna sína ...
héðan í frá les ég bara DV
En að öllu gríni slepptu þá verð ég að segja að mér finnst alltof algengt að finna stafsetningarvillur eða kjánalegt orðafar í greinum hjá fréttamiðlum okkar lands. Þetta er eitthvað sem maður hefði búist við af Dv en þegar ég sé þetta gerast á mbl.is þá verð ég fyrir vonbrigðum.
Nýja dæmið er frétt sem kom á netið í dag og fjallar um það að Amy Winehouse noti bleyju.... ok ég veit að þetta er voða flókið orð og ekki margir sem kunna að stafa það en í raun er það bleia... og það mætti vel vera rétt stafað í fréttaflutningi... ekki að þetta hafi verið frétt, þetta þótti samt það merkilegt að það rataði á mbl.is.
Þessi frétt rataði ekki inn á borð hjá visir.is sem vekur upp þá umhugsun um hvort maður ætti alfarið að skipta um fréttamiðil.. eða jafnvel hætta að lesa slúðrið....
Fréttir eiga ekki að vera unnar í flýti og fréttamenn eiga að bera meiri virðingu fyrir tungumálinu sínu.
Þetta var allt og sumt sem ég hafði að segja
bless í bili.....
Guðný Hulda
26. maí 2008 klukkan 20:14
Þá er ég búin að fara á þriðju og síðustu sumarönnina mína. Þetta var nú bara rosalega gaman. Var í skólanum allann daginn alla dagana og þetta var rosaleg törn en mjög skemmtilegt. Ég fór á þriðjudeginum 13 maí og komu Kiddi , Vala og Viktoría á laugardeginum 17. Kiddi fór svo aftur heim á mánudagskvöldið og vorum við Vala og Viktoría á Akureyri fram á föstudag.
Við skemmtum okkur mjög vel stelpurnar saman á Akureyri. Vala og Viktoría dúlluðu sér á daginn meðan ég var í skólanum.
Annars hef ég voða lítið að segja :) Vildi bara láta vita af mér. ætla að fara að gera eitthvað af viti
Guðný Hulda
13. maí 2008 klukkan 15:47
Guðný Hulda
01. maí 2008 klukkan 00:32
Á miðvikudaginn fórum við út. Ég sat með Völu og Önnu Lilju í vélinni sem var mjög gaman... Við fórum upp á hótel með töskurnar og röltum svo allur hópurinn um hverfið... fengum okkur að borða og versluðum inn mogrunmat og ávexti.
Á fimmtudeginum fórum við í leikskólaheimsókn sem var mjög áhugavert og skemmtilegt. Síðan komu Valla og Sara vinkona hennar upp á hótel og við fórum allar með hópnum í china town og little italy. Svo fórum við stelpurnar að versla, fórum meðal annars í h&m og disney búðina. Eftir það fórum við að borða og svo röltum við á times square. Kíkjum rétt inn í risa toys´r´us þar sem okkur var nokkurn veginn fleygt út á slaginu 22 þegar búðin lokaði.
Á föstudeginum var önnur leikskólaheimsókn sem var einnig mjög skemmtileg og áhugaverð. Síðar um daginn var förinni heitið í búðir og var mikið verslað. Um kvöldið var svo árshátíðarkvöldverður með öllum hópnum af leiskólanum.
Á laugardeginum fórum við Vala og Anna Lilja með lest til Princeton þar sem Valla býr. Við keyrðum smá um bæinn og fórum heim til Völlu og hitti ég Snældu óendanlega fallegu kisuna hennar og hún heilsaði mér sem er víst ekki algengt að hún geri!! (Valgerður virðist eiga skapskrítinn kött eins og ég ;) ) Við lögðum svo af stað í the King of prussia mall þar sem við versluðum af okkur ýmsa líkamsparta. Á leiðinni í mallið stoppuðum við reynar á IHOP (international house of pancakes) og fengum okkur ekta amerískar pönnukökur. Mallið var huges stórt og við skemmtum okkur vel þar. Enduðum á að fá okkur ostaköku af cheesecake factory og verð ég að segja að bara sú kökusneið toppaði ferðina algjörlega...
Við vöknuðum snemma á sunnudeginum ég Vala og Anna Lilja og röltum í best buy (sem var ekki rölt einhverjar 10-15 blocks eða eitthvað hahahahah) og sáum trump húsið. ;) tókum lest niður á 34th street og fengum okkur að borða löbbuðum svo niður á times square og fórum í m&m búðina. Síðan var förinni heitið á flugvöllinn með allar töskurnar. Ég held að enginn hafi verið með yfirvigt í öllum hópnum. Við lentum á íslandi kl 6:20 á mánudagsmorgninum og lögðum af stað heim.
Ég er ennþá pínu þreytt eftir ferðina. En voða ánægð og glöð!
Ég hef farið í þrjú fylki í ameríkunni (New York, New Jersey og Pensilvaniu (minnir mig ;)))
Í ameríku sá ég Empire state, time square, trump húsið, subway stað ;), dominos!, búð sem heitir sleepys (mér finnst það mjög fyndið, an american breinhein (brunahani einkahúmor), tvo mjög flotta leikskóla, mikla flóru af alls konar fólki, mjög mjög mjög mikið af m&m, og ég man ekki meir í augnablikinu.
Ég keypti óendanlega mikið af dóti, sápur og svoleiðis drasl í victorias secret, slatta af fötum á mig, dvd handa kidda, föt á Viktoríu Hildi og slatta af böngsum handa henni!
New York er rosalega stór borg. Öll húsin eru svo há og þetta var fyrst svolítið yfirþyrmandi :) en rosalega flott og mig langar mikið að fara aftur þangað.
En ég verð nú að viðurkenna að ég hlakkaði mikið til að koma heim og saknaði kidda, kisu og Viktoríu Hildar mjög mikið.
En já ég held að þetta sé barasta komið. Ég kveð í bili
Guðný Hulda
10. apríl 2008 klukkan 23:18
Þá er maður barasta að verða gamall…. Ætti að fara að finna hrukkur um leið og ég vakna á laugardaginn ( er fædd svo snemma um morgun sko! ) Ætli maður þurfi þá ekki að fara að verða ráðsett kona og vera farin að sofa fyrir 10 á kvöldin? Ég ætla að njóta þess að vera ung meðan ég er það enn……
Annars er ég ekki með neina aldurskomplexa…..
Lífið þessa vikuna hefur farið í göngutúra, tiltekt og eltingarleik við lítinn hraðskeiðan unga.
Mikið eru þessi kríli hraðskeið hehehehhe …. Hún er farin að ná að króa kisu af í hornum ... greyið volar bara undan henni og þorir ekkert að gera og þá sko hlær Viktoría að greyið kisu
Svo styttist og styttist í new york.. ég er nú farin að vera frekar spennt J þetta verður fjör.... Jæja ég er farin að sofa í hausinn á mér orðin alltof þreytt J bless í bili
Guðný Hulda
21. mars 2008 klukkan 01:45
samt aðeins meira fyrir maríu.......

Hvað geri ég ekki fyrir Völu mína heheheheheh
verða ð viðurkenna að ég fékk smá sjokk þegar ég fletti honum upp og það kom mynd af honum með lítið barn.... hann sagði mér aldrei að hann ætti barn.. sagði hann þér það María?
ég gæti bætt við einni mynd.....

Ég vissi að þessi ætti börn....
en svona ein í alvörunni handa Völu....

Verði þér að góðu Vala mín....
þetta er páskaeggið þitt.......
Guðný Hulda